SKÁLHOLTSPRESTAKALL - HELGIHALD Í TÍU KIRKJUM
UM JÓL OG ÁRAMÓT 2019-2020.
AÐFANGADAGUR – 24. DESEMBER
SÓLHEIMAKIRKJA Grímsnesi:
Hátíðarguðsþjónusta á aðfangadag kl. 17.00.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson biskup annast prestsþjónustuna.
Organisti er Elísa Elísdóttir.
AÐFANGADAGSKVÖLD – 24. DESEMBER
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Aftansöngur með hátíðarsöngvum
á aðfangadagskvöld kl. 18.00.
Sr. Kristján Björnsson Skálholtsbiskup annast prestsþjónustuna.
Félagar úr Skálholtskórnum syngja. Organisti er Jón Bjarnason.
Sungnir verða hátiðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.
JÓLANÓTT 24. – 25. DESEMBER
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Miðnæturmessa á jólanótt kl. 23.30.
Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Félagar úr Skálholtskórnum syngja. Organisti er Jón Bjarnason.
JÓLADAGUR – 25. DESEMBER
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal:
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 11.00.
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur annast prestsþjónustuna.
Söngkór Miðdalskirkju syngur. Organisti er Jón Bjarnason.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 14.00.
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Skálholtskórinn syngur. Organisti Jón Bjarnason.
Sungnir verða hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.
ÞINGVALLAKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 14.00.
Sr. Kristján Björnsson Skálholtsbiskup, annast prestsþjónustuna.
Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Björg Þórhallsdóttir syngur.
ANNAR Í JÓLUM – 26. DESEMBER
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi:
Hátíðarguðsþjónusta á annan í jólum
26. desember kl. 13.30. Ath breyttan messutíma.
Prestur sr. Egill Hallgrímsson. Organisti er Jón Bjarnason.
Söngkór Miðdalskirkju syngur.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á annan i jólum
26. desember kl. 15.00.
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur, annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
ÞRIÐJI Í JÓLUM - 27. DESEMBER
ÚTHLÍÐARKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á þriðja í jólum,
27. desember kl. 16.00.
Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Úthlíðarkórinn leiðir almennan söng. Organisti er Jón Bjarnason.
LAUGARDAGUR MILLI JÓLA OG NÝÁRS – 28. DESEMBER
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Barnasamvera á laugardag milli jóla og nýárs
28. desember kl. 11.00.
Bergþóra Ragnarsdóttir, djáknakandídat annast stundina. Organsti er Jón Bjarnason.
SUNNUDAGUR MILLI JÓLA OG NÝÁRS – 29. DESEMBER
HAUKADALSKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á sunnudag milli jóla og nýárs,
29. desember kl. 13.30. Ath breyttan messutíma.
Sr. Skírnir Garðlarsson annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
ÚLFLJÓTSVATNSKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á sunnudag milli jóla og nýárs,
29. desember kl. 16.00.
Sr. Skírnir Garðlarsson annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
GAMLÁRSDAGUR – 31. DESEMBER
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Hátíðarmessa á gamlársdag kl. 17.00.
Sr. Axel Árnason Njarðvík, héraðsprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA Grímsnesi:
Hátíðarguðsþjónusta á gamlársdag kl. 17.00.
Sr. Hannes Örn Blandon annast prestsþjónustuna.
Organisti er Ester Ólafsdóttir.
NÝÁRSDAGUR – 1. JANÚAR 2020
TORFASTAÐAKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag kl. 14.00.
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur, annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
ÞINGVALLAKIRKJA:
Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14.00.
Sr. Kristján Björnsson Skálholtsbiskup annast prestsþjónustuna.
Organisti er Ester Ólafsdóttir.






